Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. desember 2005 Innviðaráðuneytið

Gæðakerfi Siglingastofnunar vottað og árangursstjórnunarsamningur undirritaður

Síðastliðinn föstudag afhenti Vottun hf. siglingamálastjóra gæðavottorð og samgönguráðherra og siglingamálastjóri undirrituðu árangursstjórnunarsamning til næstu fjögurra ára.

Sturla Böðvarsson og Hermann Guðjónsson undirrita samninginn
Arangursstjornunarsamningur

Gæðavottorðið staðfestir að stofnunin starfrækir gæðakerfi sem samræmist kröfum ÍST EN ISO 9001:2000 staðalsins um útgáfu áritunar og endurnýjunar alþjóðlegra atvinnuskírteina fyrir sjómenn.

Skírteinin veita réttindi til starfa á farþega- og flutningaskipum sem eru í alþjóðasiglingum, og eru skráð í ríkjum sem hafa að mati Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar uppfyllt ákvæði alþjóðasamþykktarinnar um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW-samþykktin).

Undanfarin ár hafa Slysavarnaskóli sjómanna, Fjöltækniskóli Íslands og Siglingastofnun Íslands unnið að því að taka upp gæðastjórnunarkerfi í starfi sínu og fá það vottað. Í byrjun þessa árs fengu bæði Fjöltækniskóli Íslands og Slysavarnaskóli sjómanna vottorð frá Vottun hf. sem staðfestingu þess að skólarnir uppfylli kröfur ISO-9001 og nú bætist Siglingastofnun í hópinn.

Við þetta tækifæri undirrituðu samgönguráðherra og siglingamálastjóri samning um árangursstjórnun til næstu fjögurra ára. Í samningnum koma fram sameiginleg markmið Siglingastofnunar og ráðuneytisins og ákveðið samskiptaferli fest í sessi. Þá er kveðið á um gagnkvæmar skyldur stofnunarinnar og ráðuneytisins, meðal annars um skil á ársáætlun og ársskýrslu. Í ársáætlun skal meðal annars gerð grein fyrir því hvaða markmiðum stefnt er að á árinu og í ársskýrslu skal koma fram samanburður á þeim markmiðum sem stefnt var að í upphafi árs og þeim árangri sem náðist á árinu.
Samninginn er hægt að nálgast hér (WORD-32kb)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum