Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. janúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið fyrri hluta árs 2009.

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið fyrri hluta árs 2009. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnustu­réttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála.

Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram dagana 16.-27. febrúar 2009. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 19:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 2.-13. mars 2009. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 16.-27. mars 2009.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrri hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 250.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykja­vík. Sími 568 5620, fax 568 7057, en einnig er hægt að ganga frá skráningu með tölvupósti á netfangið [email protected]. Við skráningu á námskeiðið þarf að til­greina nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk netfangs. Við skráningu skal jafnframt leggja fram afrit prófskírteinis til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til 11. febrúar 2009.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
27. janúar 2009


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum