Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. mars 2009 Innviðaráðuneytið

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar.

Prófnefnd leigumiðlunar heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í mars og apríl ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994. Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar Háskóla Íslands eigi síðar en 20. mars næstkomandi.

Skráning og nánari upplýsingar eru veittar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Tenging frá vef ráðuneytisinsUpplýsingar um námskeið til réttinda leigumiðlunar



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum