Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. janúar 2010 Innviðaráðuneytið

Hækkun viðmiðunarfjárhæðar eignamarka vegna húsaleigubóta

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út viðmiðunarfjárhæð fyrir árið 2010 um eignamörk til útreiknings á húsaleigubótum til einstaklinga. Hækkunin nemur 7,51% í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs á liðnu ári.

Viðmiðunarfjárhæðin tekur breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, eins og kveðið er á um í reglugerð um húsaleigubætur, nr. 118/2003. Samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 7,51% frá ársbyrjun 2009 til ársbyrjunar 2010.

Frá og með 1. janúar 2010 er viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 5.918.453 kr.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum