Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. ágúst 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatryggingar

Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatryggingar, „Áfram veginn 2010“ er komið á vef Tryggingastofnunar http://www.tr.is/ og vef Sjúkratrygginga Íslands http://www.sjukra.is/.

Í ritinu er leitast við að svara helstu spurningum um lífeyristryggingar og sjúkratryggingar, sem upp koma við upphaf töku ellilífeyris og þegar sækja þarf heilbrigðisþjónustu. Ritið er aðgengilegt á pdf-formi á vefnum.

Áfram veginn hefur komið út árlega frá árinu 1999. Það er sent til allra sem eru að öðlast réttindi til töku ellilífeyris. Unnt er að panta ritið hjá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum Íslands með því að senda póst á netfangið [email protected]

Upplýsingaritið „Áfram veginn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum