Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Rætt um friðhelgi einkalífs og meðferð persónuupplýsinga á ráðstefnu á morgun

Ráðstefnan um meðferð persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs fer fram á morgun, föstudag 19. október, í hátíðarsal Háskóla Íslands. Hefst hún klukkan 13.15 og gert er ráð fyrir ráðstefnulokum laust eftir klukkan 17.

Að ráðstefnunni standa innanríkisráðuneytið og Persónuvernd í samvinnu við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og lagadeild Háskóla Íslands. Varpað verður ljósi á nokkur mikilvæg álitaefni um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, hvaða hættur steðja að friðhelgi einkalífs og persónuvernd og hvernig skuli bregðast við þeim. Ráðstefnan fer fram á íslensku og ensku og er öllum opin.

Erindi flytja íslenskir og erlendir sérfræðingar sem fjalla meðal annars um dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu um persónuvernd, um áhrif reglna Evrópusambandsins á íslenskan rétt og nýja Evrópulöggjöf um persónuvernd, um vernd stjórnarskrárinnar og forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu svo eitthvað sé nefnt. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytur lokaorð ráðstefnunnar.

Dagskrá:

 

13.15 Ráðstefnan sett

Ragnhildur Hjaltadóttir ráðstefnustjóri

13.25 Nýleg dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu um persónuvernd

Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu

13.50 The role of the Council of Europe in protecting privacy and personal data and current challenges

Maria Michaleidou, sérfræðingur hjá Persónuverndarskrifstofu Evrópuráðsins

14.15 Áhrif reglna Evrópusambandsins á íslenskan rétt og ný Evrópulöggjöf um persónuvernd

Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar

14.40 Social network services and privacy – How does Facebook affect personal privacy?

Bjørn Erik Thon, forstjóri Persónuverndar í Noregi

15.05 Fyrirspurnir og umræður

15.20 Kaffihlé

15.40 Vernd stjórnarskrárinnar á friðhelgi einkalífs og meðferð persónuupplýsinga

Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands

16.05 Meðferð persónuupplýsinga í heilbrigðiskerfinu – Réttindi einstaklings og almannahagsmunir

Sigurður Guðmundsson, prófessor við læknadeild og fyrrverandi landlæknir

16.30 Forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu og persónuvernd

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins

16.55 Fyrirspurnir og umræður

17.15 Ráðstefnu slitið

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum