Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. október 2013 Heilbrigðisráðuneytið

Langtímaáætlun um tækjakaup Landspítala

Lækningatæki - Johannes Jansson Norden.org
Lækningatæki
Sameiginleg yfirlýsing fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra:

Í tengslum við gerð fjárlaga 2014 munu fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra vinna að gerð nýrrar tækjakaupaáætlunar fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri  til ársins 2017. Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem lögð er áhersla á viðhald og endurbætur á núverandi húsa- og tækjakosti Landspítalans.

Áætlunin verður unnin í samráði við starfsfólk Landspítalans og Sjúkrahússins á  Akureyri og kynnt ríkisstjórn og fjárlaganefnd fyrir 2. umræðu fjárlaga.

Á undanförnum árum hafa framlög til tækjakaupa verið töluvert lægri en nauðsynlegt er talið. Til marks um það lækkaði föst fjárveiting til tækjakaupa á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri um nær helming að raungildi frá árinu 2006 til 2013.
Ekki síst í ljósi þessa verður ekki hjá því komist að ráðast í gerð langtímaáætlunar um fjárfestingar í tækjakosti fyrir sjúkrahúsin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum