Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. apríl 2015 Forsætisráðuneytið

Námskeið um vottun jafnlaunakerfa

Á námskeiði
Á námskeiði

Velferðarráðuneytið stendur, í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands, fyrir námskeiði um vottun jafnlaunakerfa. Á námskeiðinu verður fjallað um lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, vinnurétt, kjarasamninga, launagreiningar og flokkun og mat á verðmæti starfa. Námskeiðinu lýkur með útgáfu skírteinis fyrir þá sem ljúka námskeiðinu með prófi.

Á baráttudegi kvenna, 24. október 2014, undirritaði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, reglugerð nr. 929/2014, um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85:2012. Reglugerðin hefur stoð í lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Markmið reglugerðarinnar er að jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana séu vottuð í samræmi við alþjóðlegar kröfur sem gilda um vottun og vottunaraðila. Í reglugerðinni er kveðið á um kröfur til vottunarferlisins og þeirra sem vottunina annast. Markmiðið er að vottunin samræmist alþjóðlegum kröfum um ferli og framkvæmd vottunar.

Samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar skal velferðarráðuneytið sjá til þess að haldið verði námskeið fyrir úttektarmenn í jafnréttis- og vinnumarkaðsmálum, sem þýðingu hafa fyrir vottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85:2012, svo uppfylla megi kröfur faggildingarstaðalsins ÍST EN ISO/IEC 17021 um sérfræðiþekkingu. 

Námskeiðið spannar sex vikur og hefst þann 28. apríl næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum