Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. júní 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Undirritun samnings um rannsókn á stöðu flóttafólks og innflytjenda

Jón Atli Beneditksson, Pia Hansson, Eygló Harðardóttir og Ragnhildur Hjaltadóttir - mynd

Samningur velferðarráðuneytis og innanríkisráðuneytis við Háskóla Íslands um gerð heildstæðrar greiningar og mats á gæðum aðlögunar innflytjenda og flóttafólks að íslensku samfélagi var undirritaður í dag. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi nýlega að leggja 10 m.kr. til verkefnisins.

Tilurð samstarfsins er skýrsla Ríkisendurskoðunar frá mars 2015 þar sem bent er á ýmis atriði sem þarfnast endurskoðunar til að bæta lagaumhverfi, stjórnsýslu og skipulag þegar kemur að málefnum innflytjenda og flóttafólks hér á landi. Með vísan til þessa lögðu félags- og húsnæðismálaráðherra og innanríkisráðherra fram tillögu í ríkisstjórn um að ráðast í smeiginlegt verkefni á vettvangi stjórnarráðsins til að skoða þætti sem varða stjórnsýslu og þjónustu á þessu sviði og greina tækifæri fyrir úrbætur.

Í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnar Íslands um að ráðast í þetta verkefni var leitað til Háskóla Íslands um aðkomu að því. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands sér um verkefnastjórnun með hjálp stýrihóps með fulltrúum frá Háskóla Íslands sem tengjast átaki skólans Fræði og fjölmenning. Til að greina sem flesta þætti sem snerta aðlögun flóttafólks verður leitað til fræðimanna frá mismunandi deildum Háskólans til að koma að rannsókninni og þannig fá heildstæða greiningu á þjónustu og aðstoð innflytjendur og flóttafólks á Íslandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum