Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. júní 2017 Innviðaráðuneytið

Aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum kynntar

Ráðherrar og borgarstjóri - myndVelferðarráðuneytið

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra og Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra kynntu 2. júní nýjan sáttmála um húsnæðismál með 14 aðgerðum til að bregðast við þeim vanda sem er á húsnæðismarkaði. Við sama tækifæri undirrituðu Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri viljayfirlýsingu ríkis og borgar um aukið framboð lóða.

Húsnæðissáttmálinn var unninn af aðgerðahópi fjögurra ráðherra og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem settur var á fót í febrúar síðastliðnum. Hópinn skipuðu ráðherrar félags- og húsnæðismála, umhverfis- og auðlindamála, fjármála- og efnahagsmála og sveitarstjórnarmála auk þriggja aðila frá samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Hópurinn mótaði tillögur að lausnum á þeim húsnæðisvanda sem er í landinu, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðirnar sem settar eru fram í tillögum hópsins eru bæði almennar og sértækar og miða að því að:

  • koma í veg fyrir núverandi ástand á húsnæðismarkaði endurtaki sig,
  • leita leiða til að ná sem fyrst jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu,
  • fjölga leiðum til fjármögnunar á eigin húsnæði.

Aðgerðirnar verða reglulega endurskoðaðar og munu eftir atvikum taka breytingum til samræmis við aðstæður hverju sinni. Aðgerðirnar koma fram í fylgiskjali.

Glæra, jafnvægi náð 2019-20120

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum