Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. september 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greinargerð um starfsemi Lindarhvols

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent Alþingi greinargerð með upplýsingum starfsemi Lindarhvols ehf. og framvindu vinnu við úrvinnslu þeirra stöðugleikaeigna sem ríkissjóður fékk í sinn hlut í tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja.

I. Samantekt

Í greinargerð þessari, sem rituð er með vísan til 6. málsl. 4. mgr. ákvæðis III til bráðabirgða við lög nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, er gerð grein fyrir framvindu við úrvinnslu stöðugleikaeigna sem ríkissjóður fékk í sinn hlut í tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja og hafa verið til umsýslu hjá Lindarhvoli ehf. auk upplýsinga um ráðstöfun stöðugleikaframlags. Skýrsla þessi gerir grein fyrir stöðu, framgangi og áætlunum um úrvinnslu eignanna frá stofnun Lindarhvols ehf. 15.apríl 2016 fram til 25. ágúst s.l.

II. Inngangur

Með setningu laga nr. 60/2015 um stöðugleikaskatt og breytingum á bráðabirgðaákvæði III laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands, sem var hluti af áætlun um losun fjármagnshafta, var heimilað að slitabú fallinna fjármálafyrirtækja gætu greitt stöðugleikaframlag í stað greiðslu stöðugleikaskatts.

Seðlabanki Íslands veitti stöðugleikaeignunum viðtöku en verðmætin runnu í ríkissjóð. Stöðugleikaeignir má í megin atriðum flokka í laust fé, framseldar eignir, skilyrtar fjársópseignir og framlög vegna viðskiptabanka.

Stöðugleikaeignir framseldar af slitabúum á grundvelli stöðugleikaframlags þeirra við samþykki nauðasamnings þeirra skiptust með eftirfarandi hætti samkvæmt mati á virði þeirra í janúar 2016, sem byggði að mestu leyti á bókfærðu virði eignanna hjá slitabúunum sjálfum:



III. Varðveisla og sala stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols ehf.

Laust fé

Allt laust fé sem borist hefur á tímabilinu hefur verið ráðstafað inn á sérstakan stöðugleikareikning í eigu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands lögum samkvæmt, sjá nánar umfjöllun um greiðsluflæði hér síðar í samantekt þessari.

Framseldar eignir

Öll skráð hlutabréf í umsýslu Lindarhvols ehf. hafa verið seld í opnu söluferli í samræmi við reglur félagsins um sölu stöðugleikaeigna með vísan til samnings þess við fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Í samræmi við reglur Lindarhvols ehf. var allt hlutafé í Lyfju hf., sem fellur undir flokkinn óskráð hlutabréf í ofangreindri greiningu, selt Högum hf. sem áttu hæsta kauptilboðið í opnu söluferli. Kaupsamningur var undirritaður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Með vísan til fyrri samantekta fjármála- og efnahagsráðuneytisins þá var stefnt að því að ljúka sölunni með greiðslu kaupverðs á fyrri hluta ársins 2017 að uppfylltum fyrrgreindum fyrirvörum. Hins vegar hefur nú komið í ljós að Samkeppniseftirlitið samþykkir ekki samruna félagsins og því verður ekki af sölunni. Lindarhvoll ehf. er nú að velta fyrir sér næstu skrefum í málinu.

Hluti af öðrum óskráðum hlutabréfum í umsýslu Lindarhvols ehf., hefur verið selt í opnu söluferli og við söluna var í samræmi við fyrrgreindar reglur lögð áhersla á gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni.

Með vísan til fyrri samantekta ráðuneytisins þá hefur langstærstur hluti skráðra skuldabréfa í umsýslu Lindarhvols verið seldur í opnu söluferli og hefur öllum fjármunum vegna þeirra verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands í Seðlabanka Íslands lögum samkvæmt.

Töluvert hefur verið um uppgreiðslur á óskráðum skuldabréfum og lánaeignum í umsýslu Lindarhvols ehf. á tímabilinu.

Umtalsverðar greiðslur hafa verið af eignum sem falla undir aðrar eignir í flokknum framseldar eignir, sem getið er hér að ofan og jafnframt voru nauðasamningskröfur á félög sem voru í slitameðferð seldar í opnu söluferli sbr. nánar samantekt ráðuneytisins til Alþingis í nóvember 2016. Hafa greiðslur vegna þeirrar sölu þegar borist og verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning Ríkissjóðs Íslands.

Skilyrtar fjársópseignir

Greiðslur vegna skilyrtra fjársópseigna hafa áfram borist og hefur þeim verið ráðstafað jafnóðum inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands.

Framlag vegna viðskiptabanka

Á vormánuðum seldi Kaupþing 29% hlut í Arion banka og var söluandvirðinu ráðstafað til greiðslu inn á skuldabréf Kaupþings til ríkissjóðs, alls 49 ma.kr. Áfram er fylgst grannt með framvindu sölu Arion banka hf. af hálfu Kaupþings ehf. og að samningsskyldum viðkomandi sé fullnægt, í gegnum eftirlitsaðila (,,observer“) samkvæmt ákvæðum afkomuskiptasamningsins við Kaupþing ehf. Gert er ráð fyrir að frekari sala á hlutum í Arion banka eigi sér stað fyrir árslok, samhliða skráningu bankans á markað. Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerir því ráð fyrir að skuldabréfið verði að fullu greitt upp á árinu og andvirðinu ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.

Greiðsluflæði

Frá því í febrúar 2017 og fram til ágústloka hafa greiðslur inn á stöðugleikareikninginn numið 56.448 milljónum króna. Staðan á reikningnum þann 3. febrúar var 6.641 milljón króna. Alls hefur 58.700 milljónum verið ráðstafað til niðurgreiðslu skulda á tímabilinu, skuldabréf sem ríkissjóður gaf út til endurfjármögnunar Seðlabanka Íslands var greitt upp að fullu en eftirstöðvar þess námu 28,5 ma.kr. Þá voru um 30 ma.kr. ráðstafað til uppkaupa á skuldabréfaflokknum RIKH 18 sem ríkissjóður gaf út til endurfjármögnunar fjármálastofnana.

Samandregið frá því að framsal stöðugleikaeignanna átti sér stað í upphafi árs 2016 og til og með 25. ágúst 2017 hafa greiðslur inn á stöðugleikareikninginn ásamt greiðslum inn á reikninga dótturfélaga numið samtals ríflega kr. 140 ma.kr. Þar af var 17 ma.kr. ráðstafað til ríkissjóðs til að mæta töpuðum bankaskatti og um 120 ma.kr. hefur verið ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.

IV. Staða núverandi stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols ehf.

Með vísan til framangreinds og fyrri samantekta félagsins liggur fyrir að Lindarhvoll ehf. hefur komið langstærstum hluta þeirra stöðugleikaeigna sem félaginu var falin umsýsla á í laust fé og hefur greiðsluflæði vegna þeirra eigna verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning í eigu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands. Hefur félagið einnig lokið við samkomulag vegna nokkurra fjársópseigna þar sem fjármunir hafa verið geymslugreiddir eða þeir verða greiddir þegar nánar tilteknum fyrirvörum hefur verið fullnægt á árinu 2017. Jafnframt verður afdreginn fjármagnstekjuskattur endurgreiddur á árinu 2017 vegna greiðslna á árinu 2016. Þá er unnið að slitum nokkurra smærri hlutafélaga og við lok þess verða fjármunir sem eru inní þeim félögum færðir yfir til ríkissjóðs.

Framseldar stöðugleikaeignir sem eru enn í umsýslu Lindarhvols og hefur ekki verið ráðstafað eða um þær þegar samið nú þegar, má skipta upp í lánaeignir, óskráð hlutabréf og aðrar eignir. Heildarverðmæti þeirra liggur að stærstum hluti í verðmæti lánaeigna.

Með vísan til þess meginhlutverks Lindarhvols ehf., samkvæmt samningi félagsins við fjármála- og efnahagsráðherra, að hámarka verðmæti stöðugleikaeignanna er það mat Lindarhvols að ekki eigi að setja þær lánaeignir sem eru enn í umsýslu félagsins í söluferli að svo stöddu þar sem það yrði ekki til þess að hámarka verðmæti þeirra heldur skuli bíða eftir lokagjalddaga.

Meðal óskráðra hlutabréfaeigna er Lyfja hf. Félagið fór í opið söluferli haustið 2016 og var tilboði Haga hf. tekið þar sem það reyndist hæst. Kaupin voru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í júlí mánuði var ljóst að ekki yrði af kaupum Haga á Lyfju þar sem Samkeppniseftirlitið hafnaði samruna félaganna. Á næstu vikum mun stjórn Lindarhvols ehf. meta næstu skref í málinu. Að mati Lindarhvols ehf. er ekki talið heppilegt að setja önnur óskráð hlutabréf í umsýslu þess í söluferli að svo stöddu þar sem slík sala muni ekki verða til þess að hámarka verðmæti viðkomandi hlutabréfa m.a. vegna eðli eignanna og annarra þátta sem snúa sérstaklega að einstökum eignum í þessum eignaflokki.

Aðrar stöðugleikaeignir sem falla undir flokkinn aðrar eignir eru að mati félagsins þess eðlis að því markmiði að hámarka verðmæti þeirra eigna til hagsbóta fyrir Ríkissjóð Íslands sé best náð með því að bíða eftir að greiðslur vegna þeirra berist beint inn á reikning ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands.

Skilyrtar fjársópseignir eru því marki brenndar að ekki er hægt að setja þær í sölu af hálfu Lindarhvols ehf. og því verður að bíða eftir að slitabúin ljúki þeim aðgerðum sem nauðsynlegar eru til að skilyrðum verði aflétt.

Sökum þess að ofantaldar eignir eru ekki söluhæfar, gæti komið til greina að ráðstafa þeim beint til niðurgreiðslu lífeyrisskuldbindinga ríkissjóðs. Þannig væri unnt að hámarka virði þeirra fyrir ríkissjóð.

Með vísan til fyrri samantekta ráðuneytisins var stefnt að því að draga verulega úr starfsemi félagsins strax á fyrri hluta árs 2017. Vegna niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins varðandi Lyfju og til þess að klára ráðstafanir á öðrum eignum, mun félagið starfa áfram um ótiltekinn tíma. Áfram verður stefnt að því að ljúka við úrvinnslu og sölu eigna eins fljótt og auðið er í samræmi við samning fjármála- og efnahagsráðuneytisins við Lindarhvol, og koma því sem unnt er í verð til þess að ná markmiðum um ráðstöfun stöðugleikaframlaga til niðurgreiðslu skulda. Ekki er óvarlegt að áætla að unnt verði að slíta starfsemi Lindarhvols ehf. á fyrri hluta árs 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum