Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. október 2017 Matvælaráðuneytið

Áfangaskýrsla um rekstrarstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi

Yadid Levy / Norden.org  - mynd

Sjávarútvegsráðherra og formaður Atvinnuveganefndar ákváðu í sumarbyrjun að gerð skyldi úttekt á rekstrarstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar skyldi m.a. horft sérstaklega til þess hvaða áhrif styrking krónunnar og sjómannaverkfallið hefðu haft og áhrifin á virðiskeðju sjávarútvegsins skoðuð sérstaklega. 

Deloitte hefur nú skilað áfangaskýrslu og þar kemur fram að ytri skilyrði hafi verið óhagstæð á árinu 2016 og útlit sé fyrir að afkoman versni á árinu 2017. Upplýsingar frá Ríkisskattstjóra sem eru nauðsynlegar til að brjóta niðurstöðurnar niður á einstök útgerðarform munu liggja fyrir í nóvember og strax í kjölfarið mun lokaskýrslan verða kláruð. 

Meðal helstu niðurstaðna í skýrslunni:

  • Á árinu 2016 drógust tekjur í sjávarútvegi saman um 25 milljarða eða 9% og EBITDA lækkaði um 15 milljarða eða 22%.
  • Afkoma botnfisksútgerða og vinnslu versnaði mest á milli ára.
  • Á árunum 2016 og 2017 þróuðust ytri hagstærðir almennt með neikvæðum hætti fyrir sjávarútvegsfélög. Verðlag sjávarútvegsafurða lækkaði verulega í íslenskum krónum og launavísitalan hækkaði.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum