Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. desember 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands

Frjálsíþróttafólk - mynd

Uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands fór fram föstudaginn 1. desember sl. Þar komu frjálsíþróttaiðkendur, þjálfarar, stjórnarfólk, aðstandendur og frjálsíþróttaunnendur saman og fögnuðu góðum árangri á árinu sem er að líða. Á hátíðinni voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur.

Þráinn Hafsteinsson og Margrét Héðinsdóttir hlutu heiðursviðurkenningar frá Frjálsíþróttasambandi Evrópu (EAA) og Aníta Hinriksdóttir og Hilmar Örn Jónsson voru útnefnd frjálsíþróttakona og frjálsíþróttakarl ársins.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og fyrrum spretthlaupari úr Ármanni kom á hátíðina, hélt stutta ræðu og veitti viðurkenningar. Sjá nánar og myndir frá hátíðinni á vef FRÍ.

  • FRJÁLSÍÞRÓTTAFÓLK - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum