Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. mars 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Landspítala falin fagleg og fjárhagsleg ábyrgð vegna S-merktra lyfja

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa fjárhagslega ábyrgð og umsýslu vegna S-merktra og leyfisskyldra lyfja frá Sjúkratryggingum Íslands til Landspítala. Horft er til þess að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á innleiðingu og notkun nýrra og dýrra lyfja í landinu fari  betur saman með þessu móti.

S-merkt lyf eru m.a. sérhæfð, dýr og vandmeðfarin lyf, notuð á sjúkrahúsum eða í tengslum við þau vegna sérhæfðrar meðferðar og er ávísun þeirra háð ströngum skilyrðum. Leyfisskyld lyf eru lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi við klínískar leiðbeiningar og eru að jafnaði kostnaðarsöm og vandmeðfarin.

Ákvörðun ráðherra tekur mið af þeim áherslum sem fram koma í þingsályktun nr. 17/146 um lyfjastefnu til ársins 2022 þar sem segir: „Ferli ákvarðanatöku um notkun leyfisskyldra lyfja verði styrkt og unnið að bættu fyrirkomulagi á umsjón og eftirliti með afgreiðslu S-merktra og leyfisskyldra lyfja og tryggt verði betur að saman fari fagleg og fjárhagsleg ábyrgð með líkum hætti og annars staðar á Norðurlöndunum, einkum í Danmörku og Noregi.“

Landspítala hefur verið falið að hefja undirbúning að þessari yfirfærslu í samráði við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisstofnanir. Þegar áætlun um verkefnið liggur fyrir mun ráðuneytið tilkynna frá hvaða tíma Landspítalinn tekur við umsýslu S-merktra og leyfisskyldra lyfja.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum