Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. maí 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra á 71. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

Heilbrigðisráðherra ávarpar 71. þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - mynd

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði frá aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að bregðast við hvatningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um að bæta aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga, þegar hún ávarpaði 71. þing WHO sem nú stendur yfir í Genf.

Í upphafi ræðu sinnar minntist ráðherra þess að 70 ár eru liðin frá stofnun WHO sem byggir meðal annars á þeirri sannfæringu að heilbrigði séu mannréttindi en ekki forréttindi. Hún minntist þess sömuleiðis að 40 ár eru liðin frá því að Alma-Ata yfirlýsingin var gefin út en í henni felst viðurkenning á því að heilbrigði öllum til handa er hagur allra þjóða og því grundvallarforsenda velferðar að stuðla að bættu heilbrigði og heilsuvernd.

Fyrr á þessu ári beindi framkvæmdastjóri WHO því til aðildarríkjanna að ráðast í markvissar aðgerðir til þess að bæta aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga. Svandís ræddi um aðgerðir íslenskra stjórnvalda í þessu skyni og lagði áherslu á að sterkt opinbert heilbrigðiskerfi sé einn af hornsteinum velferðarkerfisins. Hún sagði frá þeirri stefnu að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, meðal annars með aðkomu fleiri fagstétta að þjónustunni, einnig að unnið sé að því að styrkja sjúkrahúsþjónustuna og síðast en ekki síst lagði hún áherslu á þá vinnu sem stendur yfir við mótun heilbrigðisstefnu þar sem meðal annars verður skilgreint betur hvert eigi að vera hlutverk ólíkra veitenda heilbrigðisþjónustu og hvernig þessir hlutar kerfisins eigi að vinna saman.

„Sterkt samfélag grundvallast á heilbrigði og almennri velferð borgaranna“ sagði ráðherra meðal annars í ræðu sinni. Forsenda þess sé opinbert heilbrigðiskerfi fyrir alla, að lýðheilsusjónarmið hafi vægi í allri stefnumótun og aðgerðum stjórnvalda og að engir séu undanskildir þessum efnum.

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum