Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. desember 2018 Matvælaráðuneytið

Íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna úthlutunar veiðiheimilda á makríl árin 2011-2014

Hæstiréttur Íslands kvað í dag upp tvo dóma í málum Hugins ehf. og Ísfélags Vestmannaeyja hf. gegn íslenska ríkinu. Í dómunum kemst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið sé skaðabótaskylt vegna stjórnunar veiða á makrílstofninum á árunum 2011-2014. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði sýknað íslenska ríkið.  

Með dómunum var viðurkennt að skylt hafi verið árið 2011 að úthluta aflamarki til veiðanna og að veiðireynsla hafi talist samfelld á þeim tíma. Með þessu var álitið að fyrirkomulag veiðileyfa samkvæmt árlegum reglugerðum sjávarútvegsráðherra frá 2010-2013 um stjórn veiðanna, sem fólu í sér úthlutun til fleiri aðila en þeirra einna sem verið höfðu að veiðunum 2007-2010, hafi ekki samrýmst lögum. Þess í stað var á sínum tíma ráðstafað jafnhliða á aðra flokka skipa til að auka fjölbreytni við veiðarnar. Dómurinn er birtur á vef Hæstaréttar.

Ráðuneytið mun nú fara yfir forsendur dómsins með ríkislögmanni og í kjölfarið ákvarða næstu skref. Þá er óhjákvæmilegt að jafnhliða verði tekið til athugunar breytt skipulag stjórnar makrílveiða.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum