Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. desember 2018 Innviðaráðuneytið

Breyting á byggingarreglugerð vegna orkuskipta og lagabreytinga

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur samþykkt breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012, sem m.a. varðar orkuskipti í samgöngum.

Með breytingunni er lögð sú skylda á mannvirkjahönnuði að gera ráð fyrir hleðslu rafbíla við ákveðinn lágmarksfjölda bílastæða við annað húsnæði en íbúðarhúsnæði, en kröfur er varða íbúðarhúsnæði eru nú þegar til staðar í reglugerðinni. Þannig er lögð enn frekari áhersla á mikilvægi orkuskipta í samgöngum með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Þá er einnig m.a. gerðar eftirfarandi breytingar á reglugerðinni:

  • Felld er niður krafa um að allir séruppdrættir vegna mannvirkjagerðar liggi fyrir við útgáfu byggingarleyfis og dregið úr kröfum um ábyrgðaryfirlýsingar meistara.
  • Ákvæði um eftirlit Mannvirkjastofnunar með störfum hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara og gæðastjórnunarkerfum eru gerð skýrari.
  • Aukin áhersla er lögð á innra eftirlit hönnuða og skráningu niðurstaðna eftirlits í gæðastjórnunarkerfi auk þess sem áhersla er lögð á gæðastjórnun og ábyrgð byggingarstjóra.
  • Meginreglan er nú sú að byggingarstjóri annast áfangaúttektir og eru stöðuskoðanir nú framkvæmdar af leyfisveitanda eða skoðunarstofu. Þá er gert ráð fyrir að byggingarstjóri geti veitt öðrum umboð í ákveðnum tilvikum til að mæta í eða annast áfangaúttektir.
  • Leyfisveitanda er nú heimilt við eftirlit að beita úrtaksskoðun í stað alskoðunar.
  • Felld hefur verið niður krafa um faggildingu vegna áfangaúttekta í ljósi þess að byggingarstjórum er falið það verkefni að meginstefnu til.
Reglugerð um (8.) breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum