Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Nýjar reglur munu auka öryggi lyfjanotenda

Nýjar reglur um merkingu lyfjaumbúða tóku gildi laugardaginn 9. febrúar. Reglunum er ætlað að draga úr líkum á því að fölsuð lyf rati inn í keðju löglegrar lyfjaframleiðslu og auka þar með öryggi notenda.

Alþingi samþykkti í lok maí síðastliðið sumar frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lyfjalögum sem hefur það að markmiði að sporna við því að fölsuð lyf komist á markað. Með lagabreytingunni var verið að innleiða tilskipun og framkvæmdareglugerð Evrópusambandsins þannig að löggjöf í tengslum við lyf fjalli um alla aðila aðfangakeðjunnar svo hægt sé að tryggja áreiðanleika hennar. Innleiðingin felur meðal annars í sér þrengri heimildir en áður til umpökkunar og endurmerkingar lyfja.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum