Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. júlí 2019 Innviðaráðuneytið

Áform um tvö frumvörp um fjármögnun samgöngumannvirkja í samráðsgátt

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram tvö lagafrumvarp á haustþingi sem fjalla um fjármögnun samgöngumannvirkja. Annars vegar frumvarp um breytingu á vegalögum og hins vegar frumvarp til nýrra laga um heimild um að stofna til samvinnu opinberra aðila og einkaaðila um fjármögnun, framkvæmdir og veghald á tilteknum köflum þjóðvega. Markmið beggja er að leita fjölbreyttari leiða til að fjármagna nauðsynlegar umbætur í samgöngukerfinu í því skyni að auka öryggi á vegum. 

Áformin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 16. júlí 2019.

Frumvarpi um breytingu á vegalögum nr. 80/2007 er ætlað að styrkja heimildir Vegagerðarinnar í vegalögum til gjaldtöku á einstökum vegköflum að undangenginni ákvörðun í samgönguáætlun. Slíkar heimildir yrðu nýttar til að flýta framkvæmdum. Í rökstuðningi með áformunum segir að Vegagerðin telji nauðsynlegt að fara í um 200 verkefni á næsta aldarfjórðungi sem áætlað er að kosti yfir 400 milljarða króna. Þótt aukið fjármagn hafi komið til vegagerðar í gildandi fjármálaáætlun dugi það engan veginn til að fullnægja þörfinni. Það þurfi því að finna leiðir til þess að fjármagna framkvæmdir og flýta þeim eins og kostur er. Í skýrslu starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins sem kynnt var í apríl 2019 var lögð til aðferðafræði við forgangsröðun verkefna. Starfshópurinn taldi í skýrslu sinni æskilegast að fjármagna framkvæmdir með breyttri forgangsröðun í ríkisútgjöldum en að ekki mætti útiloka gjaldtöku í samgöngukerfinu. 

+ Áform um frumvarp til laga um breytingu á vegalögum í samráðsgátt

Hin áformin snúa að því að leggja fram frumvarp til nýrra laga um heimildir til að stofna til samvinnu opinberra aðila við einkaaðila um tilteknar vegaframkvæmdir og gjaldtöku vegna þeirra. Í frumvarpinu verður fjallað um eðli framkvæmda af þessu tagi, eignarhald samgöngumannvirkja og stöðu þeirra í vegakerfinu. Í frumvarpinu verður einnig fjallað um heimildir til gjaldtöku, með hvaða hætti slíkt gjald skuli lagt á og hvaða takmörkunum gjaldtakan er háð, ábyrgð á greiðslu gjaldsins, innheimtu- og sektarheimildir ef látið er hjá líða að greiða gjaldið, eftirlit með gjaldtökunni o.s.frv.

+ Áform um frumvarp til laga um heimild til að stofna til samvinnu opinberra aðila og einkaaðila um fjármögnun, framkvæmdir og veghald á tilteknum köflum þjóðvega

Miðað er við að ábendingar sem berast verði skoðaðar við ritun frumvarpsins sem er í undirbúningi. Drög að frumvörpunum verða sett í samráðsgáttina til umsagnar þegar þau liggja fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum