Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. október 2019 Innviðaráðuneytið

Opinn morgunfundur um endurskoðaða samgönguáætlun

Samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 verður kynnt á opnum morgunverðarfundi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins fimmtudaginn 17. október í Norræna húsinu milli kl. 8:30-10:00. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi síðasta vetur. Samgönguáætlunin verður birt í samráðsgátt stjórnvalda samtímis fundinum.

Boðið verður upp á kaffiveitingar frá kl. 8:00. Allir eru velkomnir en fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Dagskrá:

  • 8:30    Samgönguáætlun 2020-2034
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

  • 9:15    Umræður í pallborði um samgöngumál
    Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar
    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum