Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. maí 2020 Matvælaráðuneytið

Skýrsla og tillögur um fiskeldisnám

Lagt er til að komið verði á laggirnar öflugu námi í fiskeldi með samfellu í námi frá framhaldsskóla í háskóla í nýrri skýrslu sem Háskólinn á Akureyri vann fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sem hefur nú verið afhent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ráðuneytið óskaði eftir því að unnin yrði óháð úttekt á námi í fiskeldi á Íslandi, gerður  yrði samanburður við nám á þessu sviði í nágrannalöndum Íslands og lagðar fram tillögur um hvað þyrfti að gera til að geta boðið fram nám á þessu sviði.

Í skýrslunni eru einnig lagðar fram tillögur um hvernig auka megi nám í fiskeldi bæði á framhalds- og háskólastigi til að koma til móts við atvinnulífið með auknu og endurbættu námsframboði.

Þar á meðal er tekið fram að mikilvægt er að framhaldsskólar þrói og auki framboð á námi fyrir starfsmenn í fiskeldi. Lagt er til að ráðinn verði verkefnastjóri vegna náms í fiskeldi á framhalds- og háskólastigi og að verkefni hans væru m.a. að leiða starfshóp við útfærslu námskrár og áfangalýsinga svo og frekara skipulags námsins. Einnig er lagt til að skipað verði fagráð um nám í fiskeldi á Íslandi.

Nám í fiskeldi - Úttekt og tillögur 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum