Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. júní 2020 Matvælaráðuneytið

Kristján Þór skipar stjórn Matvælasjóðs

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra - mynd

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn Matvælasjóðs. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Unnið hefur verið að stofnun sjóðsins undanfarið ár í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en ákveðið var að flýta vinnu við að setja sjóðinn á fót sem hluta af aðgerðum til að bregðast við áhrifum COVID-19. Alls verður 500 m.kr. varið til stofnunar sjóðsins á þessu ári.

Stjórnin er skipuð til þriggja ára og er þannig skipuð:

  • Gréta María Grétarsdóttir, án tilnefningar, formaður.
  • Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Karl Frímannsson, án tilnefningar

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Við Íslendingar erum matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands. Því er stofnun Matvælasjóðs, með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu.“

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum