Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. febrúar 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021

  - myndStjórnarráðið

Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021 og er þema verðlaunanna í ár Sjálfbær matvælakerfi – sjálfbært úr hafi og jörð á borð og aftur til baka. Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt stofnun, fyrirtæki eða einstaklingi á Norðurlöndum, sem hefur unnið markvisst að því að auka fjölbreytileika náttúrunnar.

Allir geta sent inn tilnefningar en frestur til að skila þeim er til 12. maí næstkomandi. Hægt er að tilnefna norræna einstaklinga, fyrirtæki eða samtök sem starfa á Norðurlöndum eða eru í samstarfi við aðila utan Norðurlanda. Verkefnin þurfa jafnframt að hafa tengingu við Norðurlönd.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs vekja athygli á og styðja við áhrifaríkt framtak umhverfinu til góða. Verðlaunaféð er 300.000 danskar krónur, en tilkynnt verður um verðlaunahafann í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Danmörku 2. nóvember 2021.

Hægt er að senda inn tillögur um verðlaunahafa með því að fylla út þar til gert eyðublað.

Eyðublað vegna tilnefninga til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021

Frétt Norðurlandaráðs þar sem óskað er eftir tilnefningum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum