Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. desember 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Loftslagsmál og aukin fjölbreytileiki í matvælaframleiðslu áherslumál í fjárlagafrumvarpi

Fjárlög á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir árið 2022 endurspegla áherslur í loftslagsmálum og auknu matvælaöryggi, auknu frelsi til fjölbreyttari matvælaframleiðslu og verðmætasköpunar sem og hvötum til nýsköpunar. Þá er lögð áhersla á að einfalda stjórnsýslu enn frekar og auka stafræn samskipti og að halda áfram að þróa Matvælasjóð sem styrkir nýsköpunar- og þróunarverkefni á sviði matvælaframleiðslu.

Á málefnasviði landbúnaðar er meðal annars gert ráð fyrir eftirfarandi verkefnum:

  • Fjárheimild málaflokksins verði aukin um 75 m.kr. til loftslagsaðgerða í landbúnaði.
  • Verkefni tengd vörnum gegn sýklalyfjaónæmi
  • Mótun og framfylgni á heildstæðri áætlun um vöktun og ábyrga nýtingu lands.
  • Kolefnishlutleysi nautgriparæktar fyrir árið 2040. Sambærileg vinna í gangi fyrir aðrar búgreinar.
  • Mótun fæðuöryggisstefnu og aðgerðaáætlun hennar sem og innleiðing landbúnaðar- og matvælastefnu.
  • Áframhaldandi þróun á mælaborði landbúnaðarins.
  • Unnið verður að heildarendurskoðun á löggjöf um búvöruframleiðslu og að gera regluverk tækni óháð svo unnt sé að veita aukna stafræna þjónustu.
  • Þróa gagnagrunna og rafrænar lausnir til að bæta stjórnun og skráningu búfjársjúkdóma og tryggja rekjanleika afurða. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 35 m.kr. í tvö ár til að koma upp heildstæðu upplýsingastjórnunarkerfi hjá Matvælastofnun fyrir opinbert eftirlit með matvælum, fóðri, dýraheilbrigði o.fl. eða svokölluðum gagnaskilagrunni.

 

Á málefnasviði sjávarútvegs og fiskeldis er áhersla er lögð á að auka samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs, að styðja við minni sjávarbyggðir og auka verðmætasköpun. Mikilvægt er að stuðla að aukinni verðmætasköpun og styrkingu stjórnsýslu í fiskeldi.

Þá er meðal annars lögð áhersla á eftirfarandi verkefni:

  • Aukinn rekjanleika hráefnis frá veiðum til markaðar og þar með bættan markaðsaðgang fiskafurða
  • Endurskoðun framkvæmdar við ráðstöfun atvinnu- og byggðakvóta.
  • Nýr fiskeldissjóður var stofnsettur 2021, til styrkingar innviða þar sem fiskeldi er stundað í sjókvíum. Fjárheimild málaflokksins verður aukin um 80,9 m.kr. vegna sjóðsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum