Opnir íbúafundir með innviðaráðherra um allt land
Opnir íbúafundir með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra verða haldnir í ágúst í öllum landshlutum.
Tilgangur fundanna er að eiga samráð og kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Þá er stefnt að því að leggja fram Samgönguáætlun síðar í haust og því gefst íbúum tækifæri nú til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.
Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað. Allir fundir hefjast kl. 16:30 nema á Akureyri en sá fundur hefst kl. 16:45.
Dagskrá og skráning á fundi
Dags. | Staðsetning (salur) | Skráning | Fundartími |
12. ágúst | Akureyri (Múlaberg) | Skráning | 16:45-18:15 |
13. ágúst | Borgarnes (Hjálmaklettur) | Skráning | 16:30-18:00 |
18. ágúst | Reykjanesbær (Radisson Park Inn) | Skráning | 16:30-18:00 |
19. ágúst | Ísafjörður (Edinborgarhúsið) | Skráning | 16:30-18:00 |
20. ágúst | Selfoss (Hótel Selfoss) | Skráning | 16:30-18:00 |
25. ágúst | Blönduós (Krúttið) | Skráning | 16:30-18:00 |
26. ágúst | Egilsstaðir (Hótel Hérað) | Skráning | 16:30-18:00 |
28. ágúst | Innviðaþing (Hilton Nordica) | Skráning | allan daginn |