Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 118/2019 Úrskurður 11. desember 2019

Mál nr. 118/2019                   Millinafn:       Hlíðbekk

 

 

Hinn 11. desember 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 118/2019 en erindið barst nefndinni 29. nóvember 2019.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Hlíðbekk uppfyllir framangreind skilyrði laga um mannanöfn og er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laganna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Hlíðbekk er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum