Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 46/2019 Úrskurður 22. maí 2019

Mál nr. 46/2019                    Eiginnafn:     Kona (kvk.)

 

 

 

 

Hinn 22. maí 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 46/2019 en erindið barst nefndinni 16. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Líkt og segir í úrskurði mannanafnanefndar í máli 1/2008, sem fjallaði um eiginnafnið Kona (kvk.), er skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi núgildandi laga um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“ Þær hefðir taka sérstaklega til gerðar mannanafna og merkingar þeirra. Orðið kona er samnafn og er notað um kvenmann á ákveðnum aldri. Ekkert ákvæði í mannanafnalögum bannar þetta berum orðum og eru nokkur orð í þessum merkingarflokki (sem tákna manneskju) á mannanafnaskrá og í Þjóðskrá, eiginnöfnin Karl, Sveinn, Drengur (kk.). Þau eiginnöfn eiga sér langa sögu í tungumálinu, sum þeirra koma fyrir í fornritum, eru til í öðrum norrænum málum og hafa þannig áunnið sér hefð sem eiginnöfn. Hins vegar hafa orðin maður, piltur, strákur, karlmaður, kvenmaður, kona, kerling, mær, stúlka og stelpa ekki verið notuð sem eiginnöfn og verður að teljast að nöfn af þessu tagi séu ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og brjóti gegn íslensku málkerfi.

Mannanafnalög heimila ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. Eiginnafnið Kona (kvk.) uppfyllir ekki öll ákvæði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kona (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum