Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 33/2019 Úrskurður 24. apríl 2019

Mál nr. 33/2019                    Aðlögun kenninafns: Gregorsdóttir

                                            

 

Hinn 24. apríl 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 33/2019.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 9. apríl 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX og XXX um að dóttir þeirra skuli vera kennd til föður síns, Grzegorz og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn stúlkunnar verði skráð í þjóðskrá Gregorsdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Gregorsdóttir.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum