Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 56/2019 úrskurður 7. ágúst 2019

Mál nr. 56/2019                     Eiginnafn:      Lady

 

Hinn 7. ágúst 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 56/2019, en erindið barst nefndinni 2. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á annað skilyrðið hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

Eiginnafnið Lady er dregið af enska orðinu lady sem er notað sem ávarpsorð og titill, Lady. Ekki er hefð fyrir því að ávarpsorð eins og frú, fröken eða herra séu notuð sem eiginnöfn í íslensku (sjá einnig úrskurð mannanafnanefndar í máli 91/2018 (Ladý) frá 20. nóvember sl.). Ekki er heldur hefð fyrir því að samnöfn sem merkja titla eða starfsheiti (t.d. biskup, ráðherra, forseti, drottning, prinsessa, prestur o.s.frv.) séu notuð sem sérnöfn í íslensku. Undantekning er orðið Jarl sem á sér langa sögu í tungumálinu og hefur þannig áunnið sér hefð sem eiginnafn (sjá einnig úrskurð mannanafnanefndar í máli 25/2015 (Prinsessa) frá 24. apríl 2015). Mannanafnanefnd telur ljóst, miðað við hefðir íslensks máls, að mannanöfn af þessu tagi séu ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.

Í þessu máli reynir einnig á þriðja skilyrðið hér að ofan um að nafn skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Í íslensku er y ekki ritað í enda orðs og því getur nafnið Lady ekki talist ritað í samræmi við fyrrgreindar ritreglur (sjá einnig úrskurð mannanafnanefndar í máli 37/2013 (Lady) frá 6. júní 2013).

Unnt er að fallast á nafn, sem ekki uppfyllir fyrstu þrjú skilyrðin hér að ofan, ef það telst hafa áunnið sér hefð í íslensku máli. Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Lady. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna getur nafnið ekki talist hafa áunnið sér hefð í íslensku máli.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lady er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum