Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 88/2018 Úrskurður 20. nóvember 2018

Mál nr. 88/2018                    Eiginnafn:     Gleymérei (kvk.)

 

Hinn 20. nóvember 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 88/2018 en erindið barst nefndinni 2. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Gleymérei (kvk.) er dregið af nafni jurtarinnar gleymmérei en rithátturinn er ekki hinn sami, sbr. að eiginnafnið er ritað með einungis einu m-i. Ritháttur nafnsins er þannig ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og uppfyllir það því ekki skilyrði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gleymérei (kvk.) er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum