Sendiráð Íslands í Moskvu
Ísland í Rússlandi
Sendiráð Íslands í Moskvu var opnað 1944. Hlutverk sendiráðsins er margþætt en snýr einkum að því að gæta hagsmuna Íslands í Rússlandi og vinna að því að þróa og efla enn frekar samskipti ríkjanna.
Auk Rússlands eru Armenía, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland (Belarús), Kasakstan, Kirgistan, Moldóva, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan í umdæmi sendiráðsins.