Hoppa yfir valmynd
13. júní 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda

Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda - myndHeidi Orava/norden.org

Opnað hefur verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til 1. september 2023. Þetta er í þriðja skipti sem fráveitustyrkir eru auglýstir til umsóknar.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Í fjárlögum vegna ársins 2023 er gert ráð fyrir að 600 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastsmengun berst til sjávar með ofanvatni. Meðal skilyrða fyrir að fráveituframkvæmd teljist styrkhæf er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða.

Styrkir

Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfrar fráveituframkvæmdar. Styrkfjárhæð skal þó aldrei verða hærri en 30% af heildarkostnaði og að jafnaði aldrei lægri en 15%.

Umsóknir á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.

Umsóknum skal fylgja verk- og tímaáætlun fyrir þá áfanga framkvæmdar sem sótt er um styrk fyrir og uppfærðar upplýsingar um framkvæmdina og kostnað frá samþykktri áætlun eftir því sem við á, auk afrita af greiddum reikningum eftir atvikum.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

Miðað er við að styrkir verði greiddir þrisvar yfir árið.  Fyrsta greiðsla vegna fyrstu 6 mánaða ársins fari fram í lok september/október.  Önnur greiðsla vegna næstu 4 til 5 mánaða fari fram í nóvember eða fyrri hluta desember.  Þriðja greiðsla vegna síðustu eins til tveggja mánaða ársins fari fram strax í byrjun árs 2024 og gögn þurfa að berast fyrir 15. janúar 2024.  Fyrirvari er á að greiðslur styrkja verði eftir því sem fjárheimildir leyfa. Styrkir verða einungis greiddir út á grundvelli þegar greiddra reikninga. Upplýsingar um útgreiðslu styrkja, útgreiðsluáætlun og útgreiðsluhlutfall verða birtar á vef ráðuneytisins.

Reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Pálsson, s. 545-8600, netfang: [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum