Hoppa yfir valmynd
21. ágúst 2014 Dómsmálaráðuneytið

Unnið að samkomulagi um hækkun sóknargjalda

Starfshópur um fjárhagsleg málefni Þjóðkirkjunnar leggur til að Þjóðkirkjan og innanríkisráðuneytið semji um hækkun sóknargjalda í áföngum á næstu árum. Einnig leggur nefndin til að eigi síðar en árið 2016 verði samið um að draga að fullu til baka á tilteknum tíma skerðingu á sóknargjöldum til að að ákvæði laga nr. 91/1987 um sóknargjöld komi að fullu til framkvæmda á ný.

Starfshópur um fjármál kirkjunnar skilaði ráðherra tillögum sínum á dögunum. Frá vinstri: Viðar Helgason, Sigríður Anna Þórðardóttir, Inga Rún Ólafsdótir og Gísli Jónasson.
Starfshópur um fjármál kirkjunnar skilaði ráðherra tillögum sínum á dögunum. Frá vinstri: Viðar Helgason, Sigríður Anna Þórðardóttir, Inga Rún Ólafsdótir og Gísli Jónasson.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skipaði starfshópinn í desember 2013 sem hafði það verkefni að endurskoða fjárhagsleg samskipti ríkis og þjóðkirkjunnar og safnaða hennar. Starfshópinn skipuðu þau Sigríður Anna Þórðardóttir, fyrrverandi ráðherra, Viðar Helgason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og séra Gísli Jónasson, prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Tengiliður við ráðuneytið var Hermann Sæmundsson skrifstofustjóri.

Starfshópurinn telur að með þessum aðgerðum yrðu söfnuðir þjóðkirkjunnar jafnsettir hvað niðurskurð varðar og stofnanir innanríkisráðuneytisins. Telur hópurinn einnig að í skýrslu nefndar fyrrverandi innanríkisráðherra sem mat áhrif niðurskurðar fjárveitinga á starfsemi Þjóðkirkjunnar og skilaði skýrslu í apríl 2012 sé dregin upp raunsönn mynd af niðurskurði á sóknargjöldum. Hafi þau frá hruni 2008 numið um 25% umfram framlög til reksturs annarra stofnana sem  heyrðu undir innanríkisráðuneytið. Fram kom í þeirri skýrslu að leiðrétting sem fékkst við lokaumræðu fjárlaga fyrir árið 2012 hafi verið mikilsverð viðurkenning á því að jafnræðis hefði ekki verið gætt og að tekjur af sóknargjöldum hefðu verið skertar langt umfram aðra sambærilega aðila sem byggja rekstur sinn á framlögum á fjárlögum.

Starfshópurinn telur að það fyrirkomulag sem kveðið er á um í gildandi lögum um sóknargjöld hafi staðist tímans tönn. Það sé farsælt bæði fyrir ríki og kirkju þar sem það skapi stöðugleika í fjármögnun sókna og sé einfalt í framkvæmd. Því gerir starfshópurinn ekki tillögu að breyttu fyrirkomulagi varðandi ákvæði og framkvæmd núgildandi laga. Aftur á móti telur starfshópurinn að langt hafi verið gengið í tímabundnum skerðingum á sóknargjöldum með bráðabirgðaákvæðum við lögin sem hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir rekstur og fjármál sókna landsins, sbr. áðurnefnda fyrri skýrslu þar að lútandi.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta