Drög að lagafrumvarpi um rafrænar þinglýsingar til umsagnar
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um þinglýsingar (rafrænar þinglýsingar) eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til og með 28. nóvember næstkomandi og skulu þær sendar á netfangið [email protected].
Frumvarpið var fyrst til umsagnar hjá ráðuneytinu í nóvember 2015. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á frumvarpinu síðan og er það því aftur til kynningar nú.