Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kynningarfundur um þróunarsjóð innflytjendamála

Innflytjendaráð stendur fyrir kynningarfundi föstudaginn 22. janúar, kl. 11-12, fyrir þá  sem hyggjast sækja um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála sem auglýstir hafa verið. Farið verður yfir umsóknarferlið, reglur um úthlutun og áherslur sjóðsins í ár. Fundurinn fer fram í gegnum Teams. Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru beðnir um að senda staðfestingu þess efnis í tölvupósti til Hrafnhildar Kvaran á netfangið [email protected].

Skráðir þátttakendur munu fá sent fundarboð.

Dagskrá:

11:00 Tatjana Latinovic, formaður innflytjendaráðs, kynnir áherslur þróunarsjóðs í ár.

11:15 Hrafnhildur Kvaran, starfsmaður innflytjendaráðs, fer yfir reglur þróunarsjóðs innflytjendamála og umsóknarferlið.

11:30 Þórdís Lilja Jensdóttir, verkefnastjóri Háskólaseturs Vestfjarða sem sér um umsýslu með afgreiðslu styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála.

11:45 Umræður og spurningar. 

12:00 Fundi slitið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum