Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2021 Innviðaráðuneytið

Byggjum grænni framtíð – Opinn kynningarfundur á Teams 18. febrúar kl. 9:00-10:15

Athygli er vakin á opnum kynningarfundi um spennandi samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð.

Verkefnið heitir Byggjum grænni framtíð og á rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum

Viðfangsefnið felst í að afla upplýsinga um losun mannvirkjagerðar á viðmiðunarári (2018), setja markmið um að minnka þá losun til 2030 og skilgreina aðgerðir svo það takist. Síðar á þessu ári verða niðurstöðurnar gefnar út í sérstökum Vegvísi að vistvænum mannvirkjum 2030.

Um 35 sérfræðingar víðsvegar úr byggingariðnaðinum hafa þegar hafið störf í sex hópum á vegum verkefnisins. Allir hagaðilar eru hvattir til að taka þátt í vinnustofum og samtölum sem munu fara fram á vegum hópanna á næstu vikum og mánuðum. Í vor verða svo drög að niðurstöðunum opnar fyrir umsagnir áður en endanleg útgáfa vegvísisins verður gefin út.

Á kynningarfundi verkefnisins þann 18. febrúar n.k. verður fjallað nánar um þetta spennandi og brýna verkefni, auk þess sem fulltrúar þriggja ólíkra hagaðila fjalla um tækifæri, áskoranir og ávinning varðandi vistvænni mannvirkjagerð út frá þeirra sjónarhorni.

Teams-hlekk á fundinn má finna hér. 

Fundurinn er öllum opinn.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Lárus M. K. Ólafsson, Samtökum iðnaðarins

  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, verkefnastjóri Byggjum grænni framtíð

    „Byggjum grænni framtíð; Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030“

  • Sigríður Ósk Björnsdóttir, VSÓ/HÍ, hópstjóri í hóp 6, mælingar

    Byggjum grænni framtíð; mælingar og markmið

  • Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks 

    Byggingarverktakar byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur

  • Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Sveitarfélög byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur

  • Brynjólfur Bjarnason, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka

    Fjármálastofnanir byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur

  • Spurt og svarað í lok fundar

Frekari upplýsingar um verkefnið verða aðgengilegar á vefsíðunni byggjumgraenniframtid.is, sem verður opnuð formlega á kynningarfundinum.

Þau sem vilja fá tölvupósta með tilkynningum um vinnustofur og aðrar vörður verkefnisins eru hvött til að skrá sig hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum