Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Margrét Hólm nýr formaður Matvælasjóðs

Margrét Hólm Valsdóttir er nýr formaður Matvælasjóðs - mynd

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur nýjan formann Matvælasjóðs.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Margrét er útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, hún er viðskipta- og iðnrekstrarfræðingur og er með diplómu í ferðamálafræði. Margrét hefur auk þess starfað sem fjármálastjóri, hótelstjóri og skrifstofustjóri og kom að rekstri búsins að Gautlöndum í Mývatnssveit um árabil.

Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem eru færðar kærar þakkir fyrir framlag sitt til sjóðsins sem fyrsti formaður hans.

Stjórn Matvælasjóðs er þannig skipuð:

  • Margrét Hólm Valsdóttir, án tilnefningar, formaður.
  • Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Karl Frímannsson, án tilnefningar

Hér má nálgast frekari upplýsingar um Matvælasjóð, en stefnt er á að auglýsa eftir umsóknum úr sjóðnum fljótlega. Sjóðurinn hefur ríflega 600 milljónir til úthlutunar árið 2021.

Í desember 2020 hlutu 62 verkefni styrk úr sjóðnum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum