Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkir til fráveituframkvæmda auglýstir til umsókna

Plast á strönd - myndHeidi Orava/norden.org

Opnað hefur verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til 15. janúar 2022. Þetta er í annað skipti sem fráveitustyrkir eru auglýstir til umsóknar, en á síðasta ári hlutu 51 verkefni frá 30 sveitarfélögum styrk og nam heildarstyrkveiting 845 milljónum króna.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Í fjármálaáætlun vegna ársins 2022 er gert ráð fyrir að 600 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastsmengun berst til sjávar með ofanvatni. Meðal skilyrða fyrir að fráveituframkvæmd teljist styrkhæf er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða.

Styrkir auglýstir árlega á vef ráðuneytis

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun auglýsa árlega á vef ráðuneytisins eftir umsóknum um styrki vegna fráveituframkvæmda og sækja sveitarfélög um styrk á vefnum. Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfrar fráveituframkvæmdar. Styrkfjárhæð skal þó aldrei verða hærri en 30% af heildarkostnaði og að jafnaði aldrei lægri en 15%.

Umsóknum skal fylgja verk- og tímaáætlun fyrir þá áfanga framkvæmdar sem sótt er um styrk fyrir og uppfærðar upplýsingar um framkvæmdina og kostnað frá samþykktri áætlun eftir því sem við á, auk afrita af greiddum reikningum eftir atvikum.

Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

Styrkir verða greiddir reglulega yfir árið og a.m.k. árlega eftir því sem fjárheimildir leyfa. Styrkir verða einungis greiddir út á grundvelli þegar greiddra reikninga. Upplýsingar um útgreiðslu styrkja, útgreiðsluáætlun og útgreiðsluhlutfall verða birtar á vef ráðuneytisins.

Reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Pálsson, s. 545-8600, netfang: [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum