Hoppa yfir valmynd
6. maí 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fleiri handrit koma til landsins og aukin áhersla á rannsóknir

Frá heimsókn Lilju D. Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra í stofnun Árna Magnússonar  þar sem hún virti meðal annars fyrir sér Konungsbók eddukvæða. - mynd

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, upplýsti ríkisstjórn um vinnu tvíhliða starfshóps Danmerkur og Íslands um forn íslensk handrit.

„Ég er mjög ánægð með gang vinnunnar og legg mikla áherslu á að breytingar verði gerðar á handritasáttmálanum. Eins og ég hef áður sagt þá viljum við fá fleiri handrit lánuð til lengri tíma og við viljum vinna þetta með dönskum stjórnvöldum,“ segir ráðherra.

 

Starfshópurinn mun ljúka störfum á næstu misserum, en tillögur sem ræddar hafa verið á þeim vettvangi snúa meðal annars að fastasýningu handrita í Húsi íslenskunnar. Vegna sýningarinnar hefur Ísland óskað eftir langtímaláni á níu handritum.

 

Þá er lagt til sameiginlegt átak landanna til að styrkja rannsóknir, stafræna endurgerð og miðlun á fornum íslenskum handritum með áherslu á að styrkja ungt fræðafólk. Haldnar verði ráðstefnur um íslenskan handritaarf og lausn alþjóðlegra deilna um menningarverðmæti, meðal annars undir formerkjum UNESCO.

 

Loks leggur starfshópurinn til að ríkisstjórnir Íslands og Danmerkur geri nýja bókun við handritasáttmálann um tillögur þær sem hér koma fram og þar sem gerð er grein fyrir skuldbindingum landanna tveggja vegna skráningar handritasafns Árna Magnússonar á lista UNESCO yfir Minni heimsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum