Hoppa yfir valmynd
12. maí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Réttindagæsla fatlaðs fólks á vakt á kjördag

Réttindagæsla fatlaðs fólks verður á vakt á kjördag og hægt er að hafa samband við hana í síma 554-8100, með tölvupósti á [email protected] eða í gegnum Facebook síðu Réttindagæslumanns fatlaðs fólks.

Ný kosningalög tóku gildi um áramótin og með þeim var meðal annars breytt fyrirkomulagi um aðstoð kjósenda við atkvæðagreiðslu. Ekki þarf lengur að fá vottorð frá réttindagæslumanni fatlaðs fólks til að fá aðstoð við atkvæðagreiðslu.

Kjósandi hefur rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna og eftir breytinguna er nóg að kjósandi mæti á kjörstað og óski aðstoðar. Þá skal aðstoð veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir. Kjósandi getur einnig komið með aðstoðarmann sem hann velur á kjörstað, undantekningin er að aðstoðarmaður má ekki vera frambjóðandi eða maki, börn, systkini og foreldrar frambjóðanda og aðstoðarmaður má ekki veita fleirum en þremur kjósendum aðstoð við sömu kosningu. Kjósandi á að ekki þurfa að útskýra fyrir kjörstjórn hvers vegna hann þarf aðstoð.

Ráðherra sendi landskjörstjórn bréf fyrr á árinu og vakti athygli á mikilvægi þess að huga að því hvernig réttindi fatlaðs fólks til þátttöku í kosningum yrði tryggð til jafns við aðra í samræmi við jafnréttisákvæði 65. greinar stjórnarskrárinnar og 29. grein samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og bauð fram aðstoð ráðuneytisins við túlkun á ákvæðum samningsins og gerð leiðbeininga um framkvæmd kosninga.

Í kjölfar bréfs ráðherra átti félags- og vinnumarkaðsráðuneytið í samskiptum við landskjörstjórn og gerði meðal annars gátlista fyrir kjörstjórnir með helstu atriðum sem þarf að hafa í huga við undirbúning og framkvæmd kosninga til að tryggja að þær séu aðgengilegar öllum kjósendum. Við vinnslu gátlistans var haft samráð við hagsmunasamtök fatlaðs fólks sem veittu gagnlegar ábendingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum