Hoppa yfir valmynd
8. september 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Mælaborð með vísum um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt mælaborð sem veitir margvíslegar upplýsingar um gæði og umfang heilsugæsluþjónustu á landsbyggðinni. Mælaborðið endurspeglar þá vísa sem lagðir eru til grundvallar í fjármögnunarlíkaninu sem stýrir fjármögnun heilsugæslustöðva. Kerfið byggist á því að fjármagn til hverrar heilsugæslustöðvar endurspegli þann hóp fólks sem stöðin þjónar, umfang og gæði veittrar þjónustu og hversu vel viðkomandi stöð nær tilteknum markmiðum um ýmsa þætti þjónustunnar. Mælaborðið gerir meðal annars kleift að bera saman hvernig einstakar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu standa gagnvart þeim breytum sem fjármögnunarlíkanið tekur til.

Fjármögnunarlíkanið á landsbyggðinni var tekið í notkun árið 2021 og er sambærilegt við fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu sem var tekið í notkun árið 2017. Í landsbyggðarlíkaninu er þó tekið tillit til þátta sem snúa að smæð einstakra stöðva, fjarlægðrar milli rekstrarstöðva sem heyra undir sömu heilsugæslu og álags vegna vaktþjónustu og slysa- og bráðamóttöku. Greiðslur fyrir vitjanir lækna, ungbarnavernd og aðar vitjanir eru sömuleiðis innan landsbyggðarlíkansins.

Fjármögnunarlíkön heilsugæslu byggjast á þekktri aðferðafræði við úthlutun fjármuna til heilsugæslu. Það hefur m.a. verið notað í Svíþjóð og var útfærsla frá Vestra Gautlandi fyrirmynd kerfanna sem hér eru notuð en lagað að íslenskum aðstæðum. Aðferðafræðin byggist á því að fjármagn til reksturs hverrar heilsugæslustöðvar endurspegli þann sjúklingahóp sem viðkomandi stöð þjónar. Allir sjúkratryggðir íbúar landsins eru skráðir á heilsugæslustöð eða hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni nema þeir óski sérstaklega eftir að vera ekki skráðir. Í þeim tilvikum eru þeir látnir tilheyra stöð í samræmi við búsetu. Fjármögnun stöðvanna byggir helst á  áætluðu þjónustumagni á hvern einstakling út frá aldri, kyni og sjúkdómsbyrði. Einnig tekur kerfið tillit til félagslegra aðstæðna þeirra einstaklinga sem skráðir eru á stöðina og fleiri þátta s.s. nýtingu á rafrænni þjónustu í  Heilsuveru. Ýmis gæðaviðmið eru byggð inn í kerfið t.d. viðmið tengd lyfjagjöf eldra fólks, bólusetningum o.fl., en einnig eru gæðaviðmið sem snúa að skráningum, mælingum og verklagi. 

Markmið um jafnræði, gegnsæi, gæði og skilvirkni

Með fjármögnunarlíkaninu eru gerðar skýrar og samræmdar kröfur til þjónustuveitenda og notaðar fyrirfram skilgreindar stýribreytur sem hafa á einn eða annan hátt áhrif á þjónustu heilsugæslunnar. Með þessu móti er áhersla lögð á að gæta jafnræðis milli rekstraraðila heilsugæslustöðva við úthlutun fjármuna, auka gegnsæi við ákvarðanatöku, stuðla að auknum gæðum þjónustunnar í þágu notenda og auka skilvirkni með fjárhagslegum hvötum. Þetta styður jafnframt við markmið laga um heilbrigðisþjónustu um að heilbrigðisþjónusta skuli ávallt veitt á viðeigandi þjónustustigi og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, líkt og einnig er fjallað um í heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum