Hoppa yfir valmynd
30. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hækkun tekju- og eignamarka vegna sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2023

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur uppfært tekju- og eignaviðmið fyrir árið 2023 í leiðbeiningum ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda. Uppfærslan tengist aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu sem kynntar voru fyrr í mánuðinum.

Tekju- og eignamörk hækka afturvirkt um 2,5% frá 1. janúar 2023. Nýju tekjumörkin eru eftirfarandi:

 Fjöldi
 heimilismanna

 Neðri
 tekjumörk
 á ári

 Efri
 tekjumörk
 á ári

 Neðri
 tekjumörk
 á mánuði

 Efri
 tekjumörk
 á mánuði

 1

 4.940.697

 6.175.872

 411.725

 514.656

 2

 6.534.470

 8.168.088

 544.539

 680.675

 3

 7.650.112

 9.562.639

 637.509

 796.887

 4 eða fleiri

 8.287.620

 10.359.524

 690.634

 863.2931)


Eignamörk hækka úr 7.157.858 kr. í 7.336.805 kr.

Ráðuneytið beinir því til sveitarfélaga að taka mið af framangreindri hækkun við endurskoðun eigin reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum