Hoppa yfir valmynd
14. júlí 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ástráður Haraldsson hefur verið skipaður ríkissáttasemjari

Ástráður Haraldsson. - myndMynd: Ríkissáttasemjari.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara til fimm ára frá og með 18. júlí 2023.  

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 2. júní sl. og var umsóknarfrestur til og með 19. júní sl. Alls bárust sex umsóknir um embættið og voru umsækjendur metnir af ráðgefandi hæfnisnefnd sem félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði. Hæfnisnefndin var skipuð fulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins og ráðherra. Nefndin skilaði álitsgerð sinni 10. júlí sl. og var niðurstaða hennar að tveir umsækjendur væru mjög vel hæfir til að gegna embætti ríkissáttasemjara.

Það er mat félags- og vinnumarkaðsráðherra að af þeim tveimur umsækjendum sem nefndin taldi mjög vel hæfa til að gegna embætti ríkissáttasemjara uppfylli Ástráður Haraldsson best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem gegnir embættinu.

Ástráður lauk embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 1990. Hann öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi árið 1991 og var skipaður hæstaréttarlögmaður árið 1995. Hann starfaði sem lögmaður í á þriðja áratug áður en hann tók við embætti héraðsdómara í janúar árið 2018. Þá hefur hann verið prófdómari í vinnurétti auk þess sem hann hefur sinnt stundakennslu í vinnurétti. Ástráður starfaði í hlutastarfi sem aðstoðarsáttasemjari við embætti ríkissáttasemjara frá árinu 2019 þar til hann tók við embætti dómara við Félagsdóm árið 2022. Hann var settur ríkissáttasemjari í deilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar í febrúar og mars árið 2023 auk þess sem hann hefur verið settur ríkissáttasemjari frá 1. júní 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum