Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ákall til aðgerða á leiðtogafundi barna og ungmenna

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, tekur við aðgerðaáætlun barna og ungmenna - mynd

Það var mikill kraftur og spenna í Norðurljósum í Hörpu um helgina þegar um 170 börn og ungmenni frá Norðurlöndunum komu saman á Norrænum leiðtogafundi barna og ungmenna. Aðgerðaáætlun var samþykkt einróma af fundargestum og afhent stjórnvöldum í lok fundar.

Norræni leiðtogafundurinn er hluti af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni í ár. Í aðdraganda að viðburðinum var ljóst í samtali og á samstarfsfundum barna og ungmenna að þau vilja meira en að vera spurð um hvað þeim finnst, þau vilja aðgerðir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, setti viðburðinn og ræddi meðal annars um mikilvægi virkrar þátttöku og samtals barna og ungmenna á Norðurlöndunum.

Líflegar og góðar umræður áttu sér stað milli allra þátttakenda á föstudeginum og fór laugardagurinn í að draga saman umræðurnar og mynda úr þeim aðgerðir sem afhentar voru Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Lagðar voru fram margar mikilvægar aðgerðir sem nauðsynlegt er að ráðamenn kynni sér og taki mið af þegar ákvarðanir eru teknar í málefnum sem snerta börn og ungmenni.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands leit við. Hann hvatti þátttakendur og minnti á mikilvægi þess að börn og ungmenni láti rödd sína heyrast. Þátttakendur á leiðtogafundinum lögðu mikla áherslu á mikilvægi umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar, meðal annars með því að koma á og viðhalda verndarsvæðum og framfylgja lögum gegn skaðlegum iðnaði og mengunarvöldum. Þau krefjast aukinnar fjárfestingar í menntun, lengri opnunartíma í félagsmiðstöðvum, jafns aðgengis að námi og öflugri almenningssamganga, sem allt eru lykilatriði í baráttunni fyrir betri og sjálfbærari heimi.

Það var aðdáunarvert að fylgjast með málefnalegum og góðum umræðum í þessum stóra og fjölbreytta hópi barna og ungmenna. Tillaga að aðgerðaáætlun var samþykkt einróma af fundargestum í lok fundarins.

Á Norræna leiðtogafundinum kom skýrt í ljós að unga fólkið er ekki bara framtíðin heldur einnig nútíðin. Þau tala ekki einungis fyrir sig sjálf heldur einnig fyrir komandi kynslóðir. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi samtal og efla enn frekar norrænt samstarf með það að markmiði að Norðurlöndin verði besti staður í heimi fyrir börn og ungmenni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum