Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málþing: Framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna

Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til málþings um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna fyrir börn og ungmenni föstudaginn 16. febrúar kl. 13:00–17:00 á Reykjavík Natura að Nauthólsvegi 52 og í streymi. Markmið málþingsins er tryggja aukið aðgengi að vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig með hagsmuni barna og ungmenna að leiðarljósi.

Á málþinginu verður farið yfir núverandi fyrirkomulag á útgáfu námsgagna og ræddar leiðir til úrbóta. Horft verður til greiningarvinnu sem hefur átt sér stað bæði hérlendis og í nágrannalöndum okkar. Að pallborðsumræðum loknum tekur við hópvinna í málstofum til að leita leiða til úrbóta fyrir hvert skólastig. Þátttakendur geta valið úr þremur málstofum eftir skólastigum (leik-, grunn- eða framhaldsskóla).

Þátttakendur sem ekki geta mætt á staðinn gefst kostur á að fylgjast með í streymi og taka þátt í hópvinnu á netinu.

Málþingið er ætlað öllum áhugasömum um gæði námsgagna og aðilum sem koma að útgáfu þeirra. Það er öllum opið en skráningar er þörf. Opið er fyrir skráningar til og með 12. febrúar.

Málþingið er liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á fyrirkomulagi námsgagnaútgáfu í samræmi við aðgerð 9 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið. Það er haldið í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Menntamálastofnun, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Hagþenki – Félag höfunda fræðirita og kennslugagna, Félag íslenskra bókaútgefenda, Samtök menntatæknifyrirtækja og Kennarasamband Íslands. Niðurstöður úr málstofunum verða nýttar við fyrirhugaða endurskoðun.

Uppfært 05.02.24 kl. 13:43

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum