Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðstefna um samvinnu í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis 18. mars

Ráðstefna um samvinnu í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis 18. mars - myndStjórnarráðið

Heilbrigðisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra standa saman að ráðstefnu fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu sem miðar að því að tengja betur saman þjónustu þessara aðila við þolendur heimilisofbeldis. „Á ég að gera það? Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis“ er yfirskrift ráðstefnunnar sem haldin verður mánudaginn 18. mars á hótel Hilton Reykjavík Nordica kl. 09.00-16.00.

Undanfarin misseri hefur mikil vinna átt sér stað af hálfu stjórnvalda til að efla og bæta þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis, jafnt heimilisofbeldis og kynferðisofbeldis. Þetta hefur verið eitt af forgangsmálum Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hann hefur m.a. lagt áherslu á verkefni sem miða að auknu samstarfi þeirra sem koma að þjónustu við þolendur, að móta og innleiða samræmt verklag þjónustunnar innan heilbrigðiskerfisins, bæta skráningu o.fl. Brotaþolum kynferðisofbeldis hefur verið tryggð sálfræðiaðstoð að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu í samstarfi við áfallateymi geðsviðs Landspítala og fjármögnuð hafa verið sex stöðugildi sérfræðinga í heimilisofbeldismálum sem sinna þolendum af öllu landinu. 

ATH! Beint streymi verður frá fyrri hluta ráðstefnunnar, þ.e. fram að hádegishléi. Eins er miðað við að þátttakendum í streymi verði gert kleift að taka þátt í skrifborðsæfingum eftir hádegi.

“Á ég að gera það?”

Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis


Ráðstefna fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2
Mánudaginn 18. mars 2024 kl. 9:00-16:00

 8:45- 9:00      Mæting og kaffi

9:00- 9:10       Ráðstefnunni ýtt úr vör og nokkur orð um samvinnu

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu

 9:10- 9:25      Verklag í heilbrigðisþjónustu um móttöku þolenda heimilisofbeldis

                        Drífa Jónasdóttir sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu

 9:25- 9:45      Höldum glugganum opnum; samvinna á milli kerfa í heimilisofbeldismálum

Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum

 9:45-10:05     Innleiðing verklags í heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi

Björk Steindórsdóttir yfirljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands           

10:05-10:30    Barnavernd, tilkynningaskyldan og samvinna á milli kerfa

Lára Steinunn Vilbergsdóttir og Ragnheiður Braga Geirsdóttir félagsráðgjafar hjá Barnavernd Reykjavíkur                

10:30-10:45    Þjónusta Landspítalans í heimilisofbeldismálum

                        Heimilisofbeldisteymi Landspítalans

10:45-11:00    Samvinna út frá sjónarhorni lögreglu

Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu

11:00-11:15    Samvinna á Vesturlandi þegar kemur að kynbundnu ofbeldi

                        Jónas Hallgrímur Ottósson, lögreglufulltrúi hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi

11:20-11:30    Ávarp ráðherra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra                   

11:30-11:40    Slit fyrri hlutar og fyrirkomulag seinni hlutar kynnt

11:40-12:30    Hádegishlé

12:30-15:15    „Á ég að gera það?“ / skrifborðsæfing

                        Hópastarf á borðum þar sem þátttakendur greina og leysa einstök mál

15:15-16:00    Samantekt og ráðstefnuslit

Ekkert þátttökugjald er en nauðsynlegt að skrá þátttöku hér: https://forms.gle/Uu1AQntY1MH19czJ6 
eða tilkynna um þátttöku með tölvupósti á netfangið: [email protected]

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum