Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Grænlandssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2024.

Grænlandssjóður er starfræktur í samræmi við lög nr. 108/2016 og hlutverk hans er að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda, sem geta stuðlað að auknum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem uppfylla framangreind skilyrði. Veittar eru 3 millj. kr. úr sjóðnum á þessu ári.

Umsóknum óskast beint til stjórnar Grænlandssjóðs og sendar menningar- og viðskiptaráðuneyti, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík, eða til [email protected] fyrir 15. mars 2024.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum en nánari upplýsingar um sjóðinn svo og eyðublöð má finna á vefsíðu sjóðsins hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Sjá einnig:

Umsóknareyðublað á íslensku

Ansøgningsskema på dansk

Grænlandssjóður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum