Hoppa yfir valmynd
16. maí 2025 Forsætisráðuneytið

Yfirlýsing sjö þjóðarleiðtoga vegna Gasa

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ásamt öðrum leiðtogum sem undirrituðu yfirlýsinguna. Á myndina vantar forsætisráðherra Írlands sem komst ekki til Tirana. - mynd

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ásamt leiðtogum sex líktþenkjandi ríkja í málefnum Palestínu, undirritaði í dag sameiginlega yfirlýsingu þar sem leiðtogarnir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa.

Í yfirlýsingunni segja forsætisráðherrar Íslands, Spánar, Noregs, Írlands, Lúxemborgar, Slóveníu og Möltu að til þessa hafi yfir 50 þúsund manns látið lífið á Gasa og margir til viðbótar muni svelta í hel á komandi dögum ef ekkert verður að gert. Þá hvetja leiðtogarnir stjórnvöld í Ísrael að breyta stefnu sinni tafarlaust, stöðva hernaðaraðgerðir á Gasa og tryggja óheftan aðgang hjálpargagna frá alþjóðlegum mannúðarsamtökum inn á svæðið.

Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman. Yfirlýsingin kemur í kjölfar sameiginlegrar yfirlýsingar utanríkisráðherra sex ríkja frá 7. maí síðastliðnum sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði. Þar höfnuðu ráðherrarnir öllum hugmyndum um brottflutning Palestínumanna frá Gasa enda væru þær brot á alþjóðalögum.

Kristrún er nú stödd í Tirana í Albaníu á vettvangi EPC (European Political Community) og fundaði þar með hinum leiðtogunum í tilefni yfirlýsingarinnar og þeirrar skelfilegu stöðu sem uppi er á Gasa.

„Frumkvæði þessa hóps og sá stuðningur við Palestínu sem fram kemur í yfirlýsingunni skiptir mjög miklu máli. Staðan á Gasa er hryllileg, hún versnar með hverjum deginum sem líður, og við getum ekki setið lengur þögul hjá. Þetta er í fyrsta sinn sem yfirlýsing er gefin út á leiðtogastigi og það bendir til þess að afstaðan sé að breytast. Ég bind vonir við að þessi yfirlýsing, ásamt öðrum ferlum sem eru í gangi á alþjóðavettvangi, leiði til stærri skrefa í málum Palestínu,“ segir Kristrún.

„Við erum að hittast hér í Tirana til að ræða öryggismál í Evrópu en hljóð og mynd þurfa að fara saman. Við erum sammála um að það sem er að gerast á Gasa þurfi að ræða í samhengi við öryggi, ekki síst öryggi í Evrópu. Það varðar hag okkar allra að koma á friði í Palestínu. Fyrir utan þann augljósa siðferðislega vinkil sem er á málinu, enda öllum ljóst að verið er að beita hungri sem vopni og alþjóðleg lög margbrotin. Það var þungur tónn í umræðum okkar og ljóst að þolinmæði gagnvart óbreyttu ástandi er á þrotum. Ég lýsti yfir fullum vilja Íslands til að halda þessu samtali áfram og taka þátt í öllum aðgerðum sem mögulega væri hægt að grípa til.“


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta