Hoppa yfir valmynd
23. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Úthlutun úr Lóu: Sniglarækt og ný tegund skíðalyftu meðal verkefna

Úthlutun úr Lóu – styrkjum til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni 2025 hefur farið fram. Í ár hljóta 21 verkefni styrk fyrir alls tæplega 100 milljónir króna. Hlutverk Lóunnar er sem áður að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni á forsendum svæðanna sjálfra. Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20% af heildarúthlutun hvers árs. Mótframlag frá umsækjanda þarf að lágmarki að vera 30%.

Áherslan í ár var á verkefni sem fela í sér hagnýtingu stafrænna lausna, þróun og nýtingu tæknilausna í heilbrigðismálum og verkefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda eða afurða á nýskapandi hátt.

Í ár bárust 97 umsóknir í sjóðinn og er þetta í 5. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Ný matsnefnd hóf störf í ár og í henni sátu Guðmundur Rafn Gíslason, Rannveig Björnsdóttir og Sigyn Jónsdóttir.

Meðal þeirra verkefna sem hljóta styrk í ár eru rannsóknir á nýtingu glatvarma til sniglaræktunar, þróun og smíði frumgerðar á handhægri skíðalyftu, hönnun á hugbúnaði sem auðveldar fjartónlistarkennslu, kynningar á hagnýtingu gervigreindar í samvinnu við þekkingarsetur og tilraunir með vinnslu örþörunga á Mývatni.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta