Hoppa yfir valmynd
26. júní 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Stefna um mönnun heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út stefnu um mönnun heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 þar sem meginmarkmiðið er að tryggja sjálfbæra og örugga mönnun heilbrigðisþjónustu á Íslandi með áherslu á gæði þjónustunnar, öryggi sjúklinga og skynsamlega notkun fjármuna. Byggt er á heilbrigðisstefnu til ársins 2030 en nánar fjallað um framtíðarsýnina, helstu áskoranir og á hvaða þætti þarf einkum að leggja á áherslu til að ná markmiðum stefnunnar.

Mönnun heilbrigðiskerfisins hefur verið áherslumál í heilbrigðisráðuneytinu um árabil. Unnar hafa verið skýrslur um mönnun og menntun tiltekinna heilbrigðisstétta, mönnun er sérstakt umfjöllunarefni í heilbrigðisstefnu til ársins 2030, heilbrigðisþing ársins 2020 var helgað mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og árið 2021 skipaði heilbrigðisráðherra landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu sem hefur verið ráðgefandi fyrir heilbrigðisráðherra á þessu sviði og samráðsvettvangur helstu hagaðila. Við mótun meðfylgjandi mönnunarstefnu hefur verið byggt á þeirri vinnu sem að framan er talin. Þess ber einnig að geta að í fjármálaáætlun hins opinbera fyrir árin 2024-2028 er dregið fram að ein stærsta áskorun heilbrigðisþjónustunnar sé að tryggja mönnun og lögð áhersla á að bregðast þurfi við því.

Mönnun heilbrigðisþjónustu er viðvarandi viðfangsefni og alþjóðleg áskorun. Hlutfall aldraðra vex hratt, sjúkdómsbyrði eykst og möguleikar á lækningu sömuleiðis. Þetta kallar á aukinn mannafla í heilbrigðisþjónustu en fleira þarf að koma til eins og bent er á í stefnunni. Þetta eru þættir eins og endurskoðun á skipulagi við veitingu þjónustu og verkaskiptingu heilbrigðisstétta, aukin þverfagleg teymisvinna, aukinn sveigjanleiki, þróun rafrænnar skráningar, nýsköpun og tækniframfarir. Mannauðurinn er engu að síður kjarni stefnunnar þar sem m.a. er sérstaklega fjallað um menntun og þjálfun, starfsleyfi og sérfræðileyfi, starfsumhverfi, ráðningar og nýliðun og öryggi, réttindi og heilsu starfsfólks.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta